top of page

Laugardalsprestakall

Í október 2020  urðu breytingar á skipulagi kirkjustarfs í hverfunum við Laugardal en samkvæmt ákvörðun kirkjuþings varð til nýtt prestakall þriggja sókna í stað þeirra þriggja prestakalla sem áður höfðu hvert um sig innifalið eina sókn.

 Nýtt Laugardalsprestakall innifelur sóknirnar þrjár við Laugardal : Ássókn, Langholtssókn og Laugarnessókn.

Sameiningunni er ætlað að auka samvinnu og samstarf sóknanna þriggja sem og og starfsfólks safnaðanna eftir því sem samkomulag verður um og er talið þjóna kirkjulegri þjónustu á svæðinu sem best.

Í prestakallinu þjóna fjórir prestar, Guðbjörg Jóhannesdóttir er sóknarprestur hins nýja prestakalls og hefur starfsstöð í Langholtskirkju.  Helga Kolbeinsdóttir og Ásta Ingibjörg Pétursdóttir prestar hafa starfsstöð í Áskirkju og  Davíð Þór Jónsson prestur prestur hefur starfsstöð í Laugarneskirkju.

Von er að fólk velti því fyrir sér hver munur á prestakalli og sókn sé?  Í stuttu máli má segja að prestakall sé skipulagseining sem er vettvangur samvinnu um kirkjulega þjónustu vígðra starfsmanna sóknanna, í prestakalli er einn sóknarprestur og einn eða fleiri prestar, sem og einn eða fleiri djáknar.  Sókn er hins vegar  grunneining þjóðkirkjunnar og eru sóknirnar í landinu á þriðja hundrað.  Hverri sókn er stýrt í samvinnu sóknarprests og prests/eða presta og sóknarnefndar sem kosin er á aðalsafnaðarfundi sóknarinnar, en í sóknarnefnd sitja óvígðir safnaðarmeðlimir.

 

Formaður Ássóknar er Valgerður Þórðardóttir, í Laugarnesi er það Úlfar Snær Arnarsson sem er formaður og í Langholti Elmar Torfason.  Því er enn um þrjár sjálfstæðar sóknir að ræða í hinu nýja prestakalli, þar sem ólík menning og áherslur búa til fjölbreytileika og aukna vídd.

Eitt af meginmarkmiðum þessarrar breytingar, sem biskup Íslands kynnti í vísitasíu sinni í prófastsdæminu 2018, er að auka samvinnu prestanna á svæðinu og auka möguleika á samstarfi sóknanna.  Prestarnir í Laugardalsprestakalli þjóna því til skiptis við sunnudagshelgihaldið í kirkjunum, og leysa hvert annað af í leyfum.  

bottom of page