top of page

Útför

Jesús sagði: ,,Ég er upprisan og lífið. Sá sem trúir á mig, mun lifa þótt hann deyi. Og hver sem trúir á mig, mun aldrei að eilífu deyja. (Jóh.11.26)

​

Þegar einstaklingur deyr fer fram útfararathöfn, venjulega í kirkju. Síðan er jarðsett í kirkjugarði. Undanfari útfararathafnar er kistulagning , sem er bænastund með aðstandendum þegar hinn látni hefur verið lagður í kistuna, áður en kistunni er lokað. Þessi bænastund er alltaf haldin og einnig þegar fram fer bænastund með ástvinum við andlátið sjálft eins og eðlilegt er.

​

Einkenni útfararathafnarinnar er hin kristna von um upprisu og eilíft líf. Jesús Kristur frelsar frá dauðanum. Í trú á hann leggjum við þau sem við kveðjum í vígða mold. Grafreitir og kirkjugarðar eru sérstaklega helgaðir í þessu skyni, nema þeir reitir sem ætlaðir eru fyrir þau sem eru utan kirkju eða tilheyra öðrum trúarsamfélögum.

​

Oftast eru þau sem deyja jarðsett í venjulegri kistu, en ef líkbrennsla hefur farið fram að lokinni útfararathöfninni þá er duftkerið jarðsett. Heimilt er að líkbrennsla fari fram á undan útfararathöfn og er þá duftker í stað kistu.

​

Í flestum kirkjugörðum er minnismerki eða reitur vegna þeirra sem drukkna og finnast ekki eða týnast með öðrum hætti. Þá er haldin minningarathöfn í kirkjunni, en blómsveigur lagður við minnismerkið.

​

Hægt er að óska eftir þjónustu presta og organista Laugarneskirkju við útför. Þjónusta prests við kistulagningarathöfn kostar 8.311 kr. en við útfararathöfn 27.011 kr. skv. gjaldskrá Innanríkisráðuneytisins. Annar kostnaður er greiddur í gegnum útfararstofu.

Ef óskað er eftir því að jarðsungið sé frá Laugarneskirkju fer sú bókun í gegnum útfararstofuna sem annast útförina.

bottom of page