Fermingardagurinn er hjá mörgum einstaklingum einn af eftirminnilegustu dögum ævinnar. Fermingarfræðsla þjóðkirkjunnar hefst á haustdögum, þá kemur saman hópur ungmenna með starfsfólki kirkjunnar og fermingarveturinn hefst.
Hópurinn kynnist - sumir þekkjast vel á meðan aðrir eru að hittast í fyrsta skipti. Á vetrarleiðinni bætast oft fleiri við og þegar fermningar hefjast á vormánuðum er komin vinatenging og félagslegur skyldleiki sem oft heldur út lífsgönguna.
Ferming þýðir staðfesting. Staðfesting þess að fermingarbarnið vill þiggja þá samfylgd með Guði sem beðið var fyrir í skírninni. Eftir fræðslu um kjarna kristinnar trúar fer fermingarbarnið með trúarjátninguna, vinnur fermingarheit og þiggur fyrirbæn og blessun.
Ferming 2024
Fermingarfræðsla safnaðanna við Laugardal stendur öllum unglingum í 8. bekk til boða, óháð trúfélagsaðild, hvort sem ferming um vorið er ákveðin eða ekki. Fermingarfræðslan er hins vegar nauðsynlegur undirbúningur fermingar sem og skírn.
Þegar barnið er skráð skal færa inn auk annarra upplýsinga:
a. Hvar barnið óskar að sækja fermingarfræðslu.
b. Hvar barnið óskar að fermast.
c. Ósk um fermingardag ef vill.
Markmið fræðslunnar er:
- Efla almenna þekkingu á kristinni trú.
- Vekja unglingana til umhugsunar um eigin lífsskoðanir.
- Ræða og æfa okkur í leiðum til að efla andlega heilsu með íhugun og bæn.
- Gefa unglingunum tækifæri á að kynnast starfinu í kirkjunni sinni.
Kynningarfundur fyrir unglingana og foreldra/forráðafólk verður í kirkjunum næsta haust, og verður tölvubréf með nánari upplýsingum og kennsluáætlun sent til skráðra barna.
Kostnaður vegna fermingarfræðslunnar er:
Fræðslugjald samkvæmt gjaldskrá Prestafélags Íslands.
Að auki innheimtir Vatnaskógur gjald fyrir fermingarferðalag og söfnuðurnir hver um sig fyrir lán á fermingarkyrtli.