top of page

Skráning hafin : Fermingarfræðsla 2023 – 2024

Updated: Sep 7, 2023


Fermingarfræðsla í Laugardalsprestakalli: Áskirkja, Langholtskirkja og Laugarneskirkja

Fermingarfræðsla safnaðanna við Laugardal stendur öllum unglingum í 8. bekk til boða, óháð trúfélagsaðild, hvort sem ferming um vorið er ákveðin eða ekki. Fermingarfræðslan er hins vegar nauðsynlegur undirbúningur fermingar sem og skírn. Þegar barnið er skráð skal færa inn auk annarra upplýsinga: a. Hvar barnið óskar að sækja fermingarfræðslu. b. Hvar barnið óskar að fermast. c. Ósk um fermingardag ef vill. Markmið fræðslunnar er: - Efla almenna þekkingu á kristinni trú. - Vekja unglingana til umhugsunar um eigin lífsskoðanir. - Ræða og æfa okkur í leiðum til að efla andlega heilsu með íhugun og bæn. - Gefa unglingunum tækifæri á að kynnast starfinu í kirkjunni sinni. Kynningarfundur fyrir unglingana og foreldra/forráðafólk verður í kirkjunum næsta haust, og verður tölvubréf með nánari upplýsingum og kennsluáætlun sent til skráðra barna. Kostnaður vegna fermingarfræðslunnar er: Fræðslugjald 21.830 kr. með fyrirvara um hækkun gjaldskrár Prestafélags Íslands. Að auki innheimtir Vatnaskógur gjald fyrir fermingarferðalag og söfnuðurnir hver um sig fyrir lán á fermingarkyrtli. Fermingardagar 2024 eru: Áskirkja: Pálmasunnudagur 24. mars kl.13 1. sunnudagur eftir páska 7. apríl kl. 13 Hvítasunnudagur 19. maí kl.11 Langholtskirkja: Pálmasunnudagur 24. mars kl.11 Skírdagur 28. mars kl. 11 Sumardagurinn fyrsti 25. apríl kl. 11 Laugarneskirkja: Pálmasunnudagur 24. mars kl. 11 Sumardagurinn fyrsti 25. apríl kl. 11 Mæðradagurinn 12. maí kl. 11 Sjómannadagurinn 2. júní kl. 11 Hlökkum til að eiga samleið næsta vetur !

Með kærri kveðju Ásta, Guðbjörg, Davíð og Sigurður prestar Laugardalsprestakall


66 views0 comments

Recent Posts

See All
bottom of page