Sunnudagaskólinn í Laugarneskirkju hófst sunnudaginn 4. september kl. 11:00 og er í boð fyrir börn á öllum aldri alla sunnudaga.
Samveran hefst með öllum kirkjugestum, svo förum við saman niður í samkomusalinn, þar sem við syngjum, spjöllum, dönsum, biðjum og horfum saman á myndband tengt biblíusögu dagsins.
Í vetur sjá Emma og Þorsteinn um sunnudagaskólann og fá til sín í heimsókn Rebba og Mýslu.

Comments