September 2010 October 2010
Mo Tu We Th Fr Sa Su
Week 35 1 2 3 4 5
Week 36 6 7 8 9 10 11 12
Week 37 13 14 15 16 17 18 19
Week 38 20 21 22 23 24 25 26
Week 39 27 28 29 30

Ritning dagsins

Fréttabréf

Skráðu þig á póstlistann til að fá fréttabréf okkar í tölvupósti.






Fréttir
Enn fleiri tilboð um fræðslu
There are no translations available.

Hún verður ekki litbrigðalaus fullorðinsfræðslan í Laugarneskirkju næstu vikurnar.
Nú er nýlokið frábæru námskeiði prestshjónanna sr. Gregory og Betsy Aikins þar sem rætt var um eflingu samskipta.  Vel á fimmta tug tóku virkan þátt í námskeiðinu og höfðu bæði gagn og gaman af.
• Nú munu þau hjónin bjóða upp á annað fjögurra kvölda námskeið sem fjallar um eflingu fjölskyldunnar og hefst það miðvikudaginn 4.11. kl. 20:00.
• Betsy ætlar auk þess að verða samferða mér á þriðjudögum kl. 20:40 þegar ég býð upp á fræðslu og samtal sem hefst þriðjudaginn 3.11. og stendur í þrjár vikur undir yfirskriftinni bæn og hugrekki.  Þar koma þau sem langar að dýpka sitt innra líf með því að koma auga á þær venjur í daglegu lífi sem hindra bænalíf þeirra. Nánari upplýsingar og fyrirspurnir um bæði þessi námskeið má fá með því að senda mér póst: This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it .
• En áður en allt þetta hefst ætlum við að taka á móti góðum gesti, sr. Jakobi Ágústi Hjálmarssyni fyrrum Dómkirkjupresti sem nýlega kom heim frá Kenýju.  Erindi hans í fullorðinsfræðsluna þriðjudaginn 27.10. kl. 20:40 er að kynna fyrir Laugarneskirkju þann möguleika að gerast vinasöfnuður ungs kristins safnaðar í fjallahéruðum Pókot í Kenýju.  Mun hann segja frá þeirri veröld sem við blasir í þessu stóra afskekkta héraði í litlum söfnuði og hvers virði það er fyrir það fólk að vera þekkt og viðurkennd af umheiminum.  Trúi ég að hér sé komið magnað tækifæri sem ekki myndi síst snúa að unga fólkinu í söfnuðinum með aðstoð okkar hinna fullorðnu. Er sérstök ástæða til að hvetja alla sem finna til ábyrgðar gagnvart vexti og viðgangi kirkjulífsins hjá okkur að koma þetta þriðjudagskvöld, helst strax í kvöldsönginn kl. 20:00 og vera með í umræðu sem hugsanlega mun innleiða nýja hljóma og liti í safnaðarlífið.
• Loks vil ég gefa hér upp bankaupplýsingar Lífsgæða, sem er fyrirtæki þeirra Aikins hjóna.  Ég hef þekkt þetta fólk í meira en 20 ár og ber til þeirra fullkomið traust af langri og góðri reynslu.  Þau gefa krafta sína studd af velunnurum úti í Bandaríkjunum og eru að byggja upp mjög merka þjónustu við Íslenskt samfélag sem vert er að styrkja.  Námskeiðið sem þau voru að ljúka við var öllum þátttakendum að kostnaðarlausu en okkur gefst kostur á að leggja eitthvað fram ef við viljum:
Reikningur þeirra er:
Lífsgæði
528-26-1266
Kt. 640395-2149
b. kv.  Bjarni Karlsson sóknarprestur
 
Fermingafræðsla fyrir fullorðna!
There are no translations available.

Yfirskriftin í fullorðinsfræðslu vetrarins er þessi.  Mig langar að bjóða þeim sem vilja tækifæri á því að rifja upp og staðfesta fyrir sjálfum sér hvað það yfir höfuð er að vera kristinnar trúar.  Ferming er staðfesting.  Þess vegna kalla ég fræðsluna þessu nafni.
Sitthvað verður á boðstólum, sjálfur mun ég halda utan um tímana og kenna flest kvöldin en m.a. mun ég fá til liðs við mig prestshjónin sr. Gregory og Betsy Aikins.  Þau eru snillingar sem hafa áratuga reynslu af fullorðinsfræðslu og munu bjóða upp á fyrirlestrapakka sem eru einstaklega vandaðir. 
Fyrsti pakkinn hjá þeim verður fjögurra kvölda námskeið um eflingu samskipta og hefst það þriðjudaginn 29.september. 
 
Þess má geta að hvert þriðjudagskvöld kl. 20:00 hefst kvöldsöngur í kirkjunni þar sem Þorvaldur Halldórsson leiðir söng við undirleik Gunnars Gunnarssonar á píanó.  Þar hef ég stutta hugvekju og bæn. Að kvöldsöng loknum kl. 20:30 er boðið upp á kaffi í safnaðarheimilinu áður en fræsðlan hefst en á sama tíma ganga tólf spora hópar kirkjunnar til sinna verka.  Við köllum þriðjudagskvöldin mannræktarkvöld og þau eru það sannarlega.
 
Bjarni Karlsson