September 2010 October 2010
Mo Tu We Th Fr Sa Su
Week 35 1 2 3 4 5
Week 36 6 7 8 9 10 11 12
Week 37 13 14 15 16 17 18 19
Week 38 20 21 22 23 24 25 26
Week 39 27 28 29 30

Ritning dagsins

Fréttabréf

Skráðu þig á póstlistann til að fá fréttabréf okkar í tölvupósti.






Fræðsla og upplýsingar
Fermingarstarfið framundan
There are no translations available.

Nú er haustið komið og Laugarneskirkja býður öllum 8. bekkingum í sókninni að sækja fermingarfræðslu.

 

Fermingartímarnir verða alla þriðjudaga kl. 15:00 – 16:30. 
Við byrjum fermingarstarfið með kvöldmessu sunnudaginn 12. september kl. 20:00 þar sem fermingarfjölskyldur eru hvattar til að fjölmenna með unglingunum, og að messu lokinni verður stuttur fundur í kirkjunni þar sem starf vetrarins verður nánar kynnt og skráningarblöð afhent.

Fyrsti fermingartími verður þriðjudaginn 14. september kl. 15:00.

Bestu kveðjur!

                                                                                                                                              

 --------------------
Fermingardagar vorsins 2011 verða sem hér segir:

 

Sunnudagur 10. apríl kl. 13:30

Pálmasunnudagur  17. apríl kl. 11:00

Sunnudagur 1. maí kl. 11:00

Sunnudagur 5. júní kl. 11:00

 
Hvað er ferming?
There are no translations available.

Ferming þýðir staðfesting. Í fermingunni staðfestir barnið skuldbindingu foreldra og guðfeðgina í skírnarathöfninni. Það fer með trúarjátninguna, vinur fermingarheit og þiggur fyrirbæn og blessun. Fermt er við messu.

Til þess að öðlast rétt til að mega fermast stundar fermingarbarnið sérstakt nám í kristnum fræðum hjá presti sínum eða fermingarfræðara, sem kallast fermingarfræðsla.

Heimild er fyrir því að barn megi vera til altaris með foreldrum sínum frá unga aldri, en meginreglan er þó sú að við ferminguna eða á meðan fermingarfræðslan stendur yfir, neyti barn í fyrsta sinn kvöldmáltíðarsakramentisins.