|
There are no translations available.
Barnakór Laugarness æfir saman á hverjum mánudegi kl. 14.00 í Laugarnesskóla. Allir krakkar sem eru í 2. til 6. bekk eru velkomnir í kórinn.
Barnakór Laugarness er samstarfsverkefni Laugarneskirkju og Laugarnesskóla. Í kórnum kynnast börnin sálmum og veraldlegri tónlist af margvíslegum toga, þjálfast jafnt í söng og framkomu og eignast ekki síst góða reynslu af því að auka lífsgæði eldri borgara og fatlaðra í sókninni er þau koma fram á ýmsum kirkjulegum samkomum yfir vetrartímann.
Stjórnandi barnakórsins er Guðrún Geirsdóttir.

|
|
|
|
|