| Um fermingarfræðsluna. |
|
There are no translations available.
Prestar safnaðarins kynna fyrir þeim allar helstu sagnir Gamla testamentisins þar sem útlistað er hvað það merkir að vera ábyrgur ráðsmaður í hinni góðu sköpun Guðs. Við kynnum þeim Jesú Krist og frásagnir Guðspjallanna af honum sem sýna ást Guðs á öllum mönnum og það hvernig Guð gefur sjálfan sig heiminum til þess að við getum gefist náunganum og iðkað réttlæti. Loks fjöllum við um heilagan anda sem kallar alla menn til að mynda samfélag kirkjunnar þar sem enginn er útundan en maður og náttúra eru í heiðri höfð í Jesú nafni. Þannig eru hinar hagnýtu og heilbrigðu trúarsetningar kristinnar kirkju útskýrðar í fermingarfræðslunni; trúin á Guð skaparann, frelsarann og heilagan anda. Þá er það líka von okkar að hvert fermt barn eigi í farteski sínu minninguna |



