|
There are no translations available.
Organisti og tónlistarstjóri Laugarneskirkju er Gunnar Gunnarsson
Gunnar Gunnarsson (1961) hóf tónlistarnám á Akureyri, en lauk kantorsprófi frá Tónskóla þjóðkirkjunnar 1988 ásamt lokaprófi frá Tónfræðadeild Tónlistarskólans í Reykjavík 1989. Árið 1993 gaf Gunnar út rannsóknarritgerð í sálmafræði sem bar heitið Weyse-handritin og Choralbog for Island og fjallar hún um tilurð fyrstu sálmasöngsbókar Íslendinga og þau handrit sem hún byggir á. Gunnar hefur getið sér gott orð fyrir fjölbreytilegan tónlistarflutning og víða komið fram á tónleikum innan lands og utan. Auk hefðbundinnar tónlistar á vettvangi kirkjuorganista hefur hann lagt sig eftir að útsetja og flytja trúarlega tónlist með nýstárlegum hætti. Einnig hefur hann leikið á píanó með mörgum þekktum tónlistarmönnum og átt þátt í útsetningum og hljóðritunum djasstónlistar og þjóðlegrar tónlistar. Á undanförnum árum hefur Gunnar í auknum mæli útsett tónlist fyrir kóra og sönghópa og hafa útsetningar hans á kirkjutónlist m.a. komið út hjá Skálholtsútgáfunni. Gunnar hefur töluvert útsett fyrir píanó og má þar nefna tónlist eftir Aðalstein Ásberg Sigurðsson (Krúsilíus og fleiri barnalög), Tómas R. Einarsson (Djassbiblía Tómasar R), Heimi Sindrason (Hótel Jörð - Söngbók Heimis Sindrasonar) og Íslensk ástar- og brúðkaupslög sem komu út á vegum Félags tónskálda og textahöfunda. Helstu hljóðritanir og samvinnuverkefni eru VON OG VÍSA ásamt Önnu Pálínu Árnadóttur (1994) og FAÐMUR (2005) ásamt Kirstínu Ernu Blöndal og hljómsveit. Gunnar hefur auk þess gefið út þrjá diska ásamt Sigurði Flosasyni, Sálma lífsins (2000), Sálma jólanna (2001) og Draumalandið (2004) og fimm í eigin nafni, SKÁLM (1996), STEF (1998), DES (2003), HÚM (2005) og HRÍM (2008).
Frá árinu 1995 hefur Gunnar verið organisti og kórstjóri við Laugarneskirkju í Reykjavík
|