| Kyrrðarstund |
|
There are no translations available. Lognið í auga stormsins Það er sagt að í auga hvirfilbyljarins sé logn. Kyrrðarstundir Laugarneskirkju eru þessháttar logn í hraða hversdagsins. Alla fimmtudaga kl. 12:00 heyrast orgeltónar Gunnars Gunnarssonar þar til kl. 12:10 að sóknarprestur byrjar kyrrðarstundina með bæn og söng. Þá flytur meðhjálpari safnaðarins guðspjall komandi sunnudags áður en sr. Bjarni útleggur það stuttlega og býður svo öllum til altarisgöngu og bænar. Kl. 12:30 bíður svo létt máltíð á kostnaðarverði í umsjá Vigdísar Marteinsdóttur sem er snillingur í eldhúsi. Þar er gott samfélag. Kyrrðarstundir í hádegi er einfaldar, fljótlegar og innihaldsríkar og þar er hópur af ólíku fólki sem raunverulega langar til að sjá ný andlit bætast við í það hlýja og góða trúarsamfélag sem þegar er fyrir hendi. Verið velkomin að kíkja og prófa! |



