September 2010 October 2010
Mo Tu We Th Fr Sa Su
Week 35 1 2 3 4 5
Week 36 6 7 8 9 10 11 12
Week 37 13 14 15 16 17 18 19
Week 38 20 21 22 23 24 25 26
Week 39 27 28 29 30

Ritning dagsins

Fréttabréf

Skráðu þig á póstlistann til að fá fréttabréf okkar í tölvupósti.






Sóknarnefnd
There are no translations available.

Sóknarnefnd hefur tvíþætt hlutverk.

Annars vegar að styðja við kristið trúarlíf í sókninni.

Hins vegar að sinna veraldarvafstri, sem óhjákvæmilega fylgir starfsemi sóknar, þ.e. fjármál, fasteignarekstur og starfsmannamál.

Sóknarnefndarmenn eru kosnir til fjögurra ára í senn. Kosið er á tveggja ára fresti og þá um hluta sóknarnefndar. Kjörnir eru varamenn og þá með sama hætti.

Sóknarnefndarmenn skipta sjálfir með sér verkum formanns, gjaldkera og ritara. Kjósa ber safnaðarfulltrúa úr hópi sóknarnefndarmanna. Þá tilnefnir sóknarnefnd menn í valnefnd prestakallsins .

Sóknarnefnd er ætlað að styðja við og hafa forgöngu um kirkjulegt starf í sókninni, ásamt sóknarpresti, presti og öðrum starfsmönnum, enda félagið myndað til að iðka trú og efla kristið gildismat.

Trúariðkunin og efling hins kristna gildismats er kjarninn í starfi sóknarinnar og mikilvægasti starfsþáttur sóknarnefndarinnar.

Starf kirkjunnar er greint í þrjá starfsþætti, þ.e. helgihald, fræðslu og kærleiksþjónustu.