September 2010 October 2010
Mo Tu We Th Fr Sa Su
Week 35 1 2 3 4 5
Week 36 6 7 8 9 10 11 12
Week 37 13 14 15 16 17 18 19
Week 38 20 21 22 23 24 25 26
Week 39 27 28 29 30

Ritning dagsins

Fréttabréf

Skráðu þig á póstlistann til að fá fréttabréf okkar í tölvupósti.






Starfið í Hátúni
There are no translations available.

Laugarnessöfnuður hefur þann heiður að þjóna Hátúnsþorpinu þar sem er Hátún 10, a og b og Hátún 12.

Í hverri viku er eitthvað um að vera.Fulltrúi safnaðarins á svæðinu er Guðrún K. Þórsdóttir djákni sem þar hefur starfað um árabil með góðum árangri.

Annan hvern sunnudag eru haldnar guðsþjónustur í sal Sjálfsbjargar á höfuðborgarsvæðinu að Hátúni 12. Þar þjónar Guðrún djákni ásamt öðrum hvorum prestanna, organista og hópi sjálfboðaliða.  Það er gott og aðgengilegt að koma í þessar messur.

Hvert þriðjudagshádegi er súpueldhús í þessum sama sal þar sem Guðrún djákni heldur utan um verkefnin ásamt hópi sjálfboðaliða.  Þar nærir fólk líkama og sál í góðu og gefandi samfélagi. 

Síðasta fimmtudag í hverjum mánuði eru haldin Gospelkvöld þar sem Þorvaldur Halldórsson söngvari leikur og syngur, Guðrún K. Þórsdóttir stjórnar en fjöldi gesta og heimamanna stíga á stokk með gamanmál og alvarlegri frásagnir.  Þá er þar ætíð Guðs Orð og bæn.