| Fastir liðir kirkjunnar |
|
There are no translations available. SUNNUDAGAR Kl. 11:00 Messa- sunnudagaskóli og messukaffi. Ungir sem aldnir fjömenna inn um aðaldyr kirkju. Fljótlega ganga börn og foreldrar yfir í safnaðarheimilið þar sem sunnudagaskólinn tekur við en messan heldur áfram í kirkjuskipi. – Messukaffi fyrir alla á eftir. Kl. 13:00 Guðsþjónusta í sal Sjálfsbjargar á höfuðborgarsvæðinu, Hátúni 12, annan hvern sunnudag. Kl. 20:00 Kvöldmessa, annan sunnudag í mánuði. Gospel og gleði. Lifandi djasstónlist leikin á undan messu.
MÁNUDAGAR Kl. 14:00 Barnakór Laugarness æfir í Laugarnesskólanum undir stjórn Huldu Guðrúnar Geirsdóttir. (2. til 6. bekkur) Kl. 20:00 Kvenfélag Laugarneskirkju heldur fundi fyrsta mánudag í mánuði. Nánari upplýsingar gefur formaðurinn, Gunnhildur Einarsdóttir kirkjuvörður.
ÞRIÐJUDAGAR Kl. 15:00 – 16:30 Fermingarfræðsla. (8. bekkur) Kl. 20:00 Kvöldsöngur í kirkjunni undir stjórn Þorvaldar Halldórssonar söngvara við undirleik Gunnars Gunnarssonar. Sóknarprestur hefur hugvekju og bæn. Kl. 20:40 – 22:00 Fræðslukvöld í umsjá sr. Bjarna. (Opið og alltaf ókeypis!) Kl. 20:40 Tólf sporin – Vinir í bata. Nýir hópar myndaðir í janúarmánuði 2009.
MIÐVIKUDAGAR Kl. 10:00 – 12:00 Foreldramorgnar. Kaffispjall foreldra, notaleg upplifun fyrir börn. Umsjón hefur Erla Björk Jónsdóttir guðfræðingur. Kl. 10:30 Gönguhópurinn Sólarmegin. Lagt er af stað frá kirkjudyrum. Létt ganga og góður félagsskapur. Allt fólk velkomið. Umsjón hefur Örn Sigurgeirsson. Kl. 14:10 – 15:30 Kirkjuprakkarar. (1. – 2. bekkur) Umsjón hefur sr. Bjarni og Gunnhildur Einarsdóttir kirkjuvörður ásamt ungleiðtogum. Kl. 15:30 - 16:30 Kirkjuflakkarar. (3.-4. bekkur) Umsjón hefur Erla Björk æskulýðsfulltrúi og nokkrir ungleiðtogar. Gengið er inn í Gamlasal og þau sem vilja koma fyrr og vera með kirkjuprökkurum og sr. Bjarna í úlfaleiknum geta komið kl. 15:15. Kl. 16:30-18:00 koma Harðjaxlar í kirkjuna. (5.-6. bekkur). Þar stjórnar líka Erla Björk og stór hópur flottra ungleiðtoga.
FIMMTUDAGAR Kl. 12:00 Kyrrðarstund í hádegi. Tónlist, ritningarorð, stutt hugvekja og bænastund. Vinnugalli er viðeigandi klæðnaður! Létt máltíð á kostnaðarverði í safnaðarheimilinu á eftir. Kl. 14:00 Samvera eldri borgara, annan hvern fimmtudag. Umsjón hefur Sigurjörn Þorkelsson framkvæmdastjóri. Kl. 15:15 Helgistund að Dalbraut 18 – 20 hina fimmtudagana. Umsjón hefur sr. Bjarni. Kl. 16:30 – 18:00 Adrenalín gegn rasisma. (8. bekkur) Umsjón hefur sr. Bjarni ásamt Erlu Björk Bolla Má Bjarnasyni og ungleiðtogum. Kl. 20:00 Unglingafélag Laugarneskirkju. (9. og 10. bekkur) Umsjón hefur Margrét Rós Harðardóttir myndlistarkona og Hákon Jónsson nemi. Kl. 20:30 Gospelkvöld að Hátúni 10 síðasta fimmtudag í mánuði. Umsjón hefur Guðrún K. Þórsdóttir djákni og Þorvaldur Halldórsson söngvari. Kl. 21:00 AA fundur í gamla safnaðarheimilinu. Gengið inn um dyr baka til að austanverðu.
FÖSTUDAGAR Kl. 13:30 – 15:00 Óðamálafélagið (7. bekkur) Umsjón hafa Matthildur Bjarnadóttir guðfræðinemi og Hörður unnsteinsson stjórnmálafræðinemi ásamt ungleiðtogum. Hér fá börnin m.a. tækifæri til að læra framsögn og tjáningu sem gerir þau hæfari til þess að taka virkan þátt í samfélaginu.
Athugið að hægt er að setja netfang sitt inn á upplýsingaveitu safnaðarins með því að smella hér.
Verið velkomin í Laugarneskirkju
|




