September 2010 October 2010
Mo Tu We Th Fr Sa Su
Week 35 1 2 3 4 5
Week 36 6 7 8 9 10 11 12
Week 37 13 14 15 16 17 18 19
Week 38 20 21 22 23 24 25 26
Week 39 27 28 29 30

Ritning dagsins

Fréttabréf

Skráðu þig á póstlistann til að fá fréttabréf okkar í tölvupósti.






Vinir í bata - 12 spora vinna
Monday, 06 September 2010 21:29
There are no translations available.

Öll höfum við margvíslegar tilfinningar sem við vitum ekki alveg hvað á að gera við. Margt fólk lifir hálfa æfina með íþyngjandi reynslu og tilfinningar sem gera vart við sig þegar minnst varir og valda depurð eða kvíða en hjá öðrum eru óuppgerðar hugsanir eins og kunningjar sem annað slagið líta í heimsókn en valda ekki beinum vandræðum þótt ekki séu heimsóknirnar skemmtilegar. Samtökin Vinir í bata gefa fólki kjörið og öruggt tækifæri til þess að vinna úr óuppgerðum tilfinningum og raða þeim í réttar hillur ef svo má að orði komast. Vinir í bata koma m.a. saman bæði í Laugarnessókn og Garðaprestakalli auk þess sem all margar fleiri kirkjur skapa rými fyrir þessa frábæru starfssemi.(sjá viniribata.is)

Laugarneskirkja býður upp á fyrsta kynningarfund strax á morgun, þriðjudag 7.9. kl. 20:00. Þá er gengið beint inn um aðaldyr kirkjunnar.

Read more...
 
Dagskrá vikuna 5. – 11.9. 2010
Thursday, 02 September 2010 15:15
There are no translations available.

su. 5.9.
Kl. 11:00  Messa og fyrsti sunnudagaskóli vetrarins. Sr. Bjarni Karlsson þjónar ásamt kór og organista safnaðarins, messuþjónum og okkar frábæru sunnudagaskólakennurum. Messukaffi.

Read more...
 
Dagskrá safnarðarstarfsins 29.8. – 4.9.
Thursday, 26 August 2010 13:09
There are no translations available.

Su. 29.8.
Kl. 20:00  Messa. Sr. Bjarni Karlsson þjónar ásamt Gunnari Gunnarssyni organista, kór Laugarneskirkju og hópi messuþjóna. Messukaffi.
Athugið að barna- og æskulýðsstarf safnaðarins hefst svo strax miðvikudaginn 1. september og fyrsta morgunmessa með sunnudagaskóla verður haldin sunnudaginn 5. sept. Kl. 11:00.  Kvöldsöngur og  kynning á 12 sporastarfi vetrarins hefst svo þriðjudagskvöldið 7. sept. Kl. 20:00.

Read more...
 
Fermingardagar vorsins 2011
Thursday, 26 August 2010 13:07
There are no translations available.

Fermingardagar vorsins 2011 verða sem hér segir:

 

Sunnudagur 10. apríl kl. 13:30

Pálmasunnudagur  17. apríl kl. 11:00

Sunnudagur 1. maí kl. 11:00

Sunnudagur 5. júní kl. 11:00

 
Frumsýning á þremur stuttmyndum
Saturday, 21 August 2010 16:26
There are no translations available.

Ágæti söfnuður!

Sunnudaginn 22. ágúst verður frumsýning í aðalsal Laugarásbíós á þremur stuttmyndum sem unglingar í Laugarneskirkju hafa unnið að í sumar. Verkefnið er að frumkvæði Laugarneskirkju í samvinnu við Vinnuskóla Reykjavíkur og Tækniskólann og ber heitið Dyggðin dýra.

Hér eru á ferð sjálfstæð skilaboð unglinganna til samfélagsins sem þau lifa í, skilaboð um trú og efa, einsemd og vináttu, fordóma og skilning og þau gildi sem máli skipta í samskiptum manna.

Það eru kvikmyndagerðarhjónin Helena Stefánsdóttir og Arnar Steinn Friðbjarnarson sem leitt hafa hópinn en gott fólk styrkti verkefnið fjárhagslega svo af því gæti orðið. 

Stuttmyndirnar heita "Somewhere over the rainbow", "Hannes" og "Forboðin ást" og verða þær sýndar í aðal sal Laugarásbíós að undan genginni kynningu hvers hóps.

Allt fólk sem hefur áhuga á lífinu er velkomið!

b. kv.

Bjarni Karlsson, sóknarprestur

 
<< Start < Prev 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Next > End >>

Page 1 of 16